Sigríđur Kristín Jónsdóttir fćddist í Minna-Garđi í Mýrahreppi í Dýrafirđi 5. október 1917.
Hún lést á sjúkrahúsinu á Selfossi 17. febrúar síđastliđinn. Foreldrar hennar voru Jón bóndi Ólafsson frá Hólum í Ţingeyrarhreppi og Ágústa Guđmundsdóttir frá Brekku, einnig í Ţingeyrarhreppi.
Sigríđur Kristín Jónsdóttir fćddist í Minna-Garđi í Mýrahreppi í Dýrafirđi 5. október 1917. Hún lést á sjúkrahúsinu á Selfossi 17. febrúar síđastliđinn. Foreldrar hennar voru Jón bóndi Ólafsson frá Hólum í Ţingeyrarhreppi og Ágústa Guđmundsdóttir frá Brekku, einnig í Ţingeyrarhreppi. Systkini Kristínar, ţau er náđu fullorđinsárum, fćddust öll á Gemlufalli í Mýrahreppi, Jónína, gift Pétri Sigurjónssyni húsasmiđi í Reykjavík, Elín, gift Oddi Andréssyni bónda á Hálsi í Kjós, Ingibjörg, gift Gísla Andréssyni á Hálsi í Kjós, og Guđmundur húsasmiđur, kvćntur Steinunni Jónsdóttur kaupmanni á Flateyri. Yngri systurnar lifa Kristínu en Guđmundur lést 1983. Fóstursystkin Sigríđar Kristínar voru Ragnheiđur Stefánsdóttir, d. 1985, gift Steinţóri Árnasyni, sjómanni frá Brekku er féll í árásinni á Fróđa, og Skúli Sigurđsson, kvćntur Ragnheiđi Jónsdóttur frá Holti, núverandi bóndi á Gemlufalli. Sigríđur Kristín ólst upp á Gemlufalli, ferjustađnum vestur yfir Dýrafjörđ, réđ bátum til hlunns međ föđur sínum, elti lömbin inn hlíđ eđa dal, sótti barnaskóla á Lambahlađi, tók af lífi og sál ţátt í blómlegu félags- og menningarlífi sveitarinnar, sveitar sr. Sigtryggs, Kristins á Núpi, Björns skólastjóra og fjölda annarra allt frá Lambadal út til Sćbóls á Ingjaldssandi. Kristín gekk í Núpsskóla ţar sem hún kynntist arftaka sr. Sigtryggs, sr. Eiríki Júlíusi Eiríkssyni frá Eyrarbakka, sem síđar varđ einnig skólastjóri á Núpi um 18 ára skeiđ. Ţau giftust 6. nóv. 1938. Húsmćđranám stundađi Kristín í Kvennaskólanum í Reykjavík en búskap sinn hófu ţau í nýju prestshúsi á Núpi 1940 og ţá fćddist fyrsti sonurinn, Ađalsteinn, síđar skólameistari Kvennaskólans, kvćntur Guđrúnu Larsen jarđfrćđingi. Átta börn til viđbótar eignuđust ţau á Núpi, Guđmund, f. 1943, d. 1946, Jón, f. 1944, dr. í jarđfrćđi viđ HÍ, kvćntur Sjöfn Kristjánsdóttur handritaverđi, Hildur, f. 1947, skrifstofumađur á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, í sambúđ međ Hreggviđi Heiđarssyni framkvćmdastjóra frá Hornafirđi, Ágústa, f. 1948, hjúkrunarfrćđingur á Sauđárkróki, gift Snorra Birni Sigurđssyni bćjarstjóra, Jónína, f. 1952, kennari á Kleppjárnsreykjum, gift Guđlaugi Óskarssyni skólastjóra, Magnús f. 1953, véltćknifrćđingur í Reykjavík, kvćntur Ástţóru Kristinsdóttur ljósmóđur, Guđmundur, f. 1954, byggingatćknifrćđingur í Borgarnesi, kvćntur Dagmar Hrönn Guđnadóttur, og Ásmundur, f. 1959, verkfrćđingur í Reykjavík, ókvćntur. Áriđ 1960 fluttu ţau hjón suđur til Ţingvalla ţar sem sr. Eiríkur gerđist ţjóđgarđsvörđur međ prestsskap sínum og hér syđra fćddust 10. og 11. barniđ: Aldís, f. 1960, kennari á Kleppjárnsreykjum, ţar sem hún býr međ Jóni Kristleifssyni ökukennara, og Ingveldur, f. 1965, kennari á Ljósafossi, gift Páli Skaftasyni sjómanni. Barna- og barnabarnabörn ţeirra Kristínar og Eiríks eru nú orđin 27. Á Ţingvöllum voru ţau Kristín uns sr. Eiríkur lét af störfum fyrir aldurs sakir og fluttu á ćskuslóđir hans í Flóanum, nánar tiltekiđ á Hörđuvelli 2 á Selfossi. Á afmćlisdegi Kristínar 1984 gáfu ţau hjónin Hérađs- og bćjarbókasafninu á Selfossi bókasafn sitt, mikiđ ađ vöxtum, ákveđiđ tákn ćvistarfs ţeirra og hugsjóna. Sr. Eiríkur lést 11. janúar 1987. Eftir fráfall sr. Eiríks dvaldi Kristín nokkrar vikur á ári hjá dćtrum sínum en hélt annars sitt hús á Heimahaga 8 međ yngsta syni sínum, Ásmundi. Áriđ 1994 var Kristín sćmd heiđursmerki fálkaorđunnar fyrir húsmóđurstörf sín um dagana. Útför Kristínar verđur gerđ frá Selfosskirkju, í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Jarđsett verđur í kirkjugarđinum á Eyrarbakka.